24.10.26 - 16:39
Ívan Guðjón Baldursson
Sigurður Arnar skammast sín: Voru ekki allir að leggja sig fram
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Arnar Magnússon var sársvekktur eftir stórt tap ÍBV gegn KA í lokaumferð deildartímabilsins í Bestu deildinni.

TENGT EFNI
Besta deildin: Þór bjargaði sér en KA féll
ÍBV var fallið um deild fyrir lokaleikinn en Eyjamenn töpuðu 5-1 á Akureyri í dag.
„Þetta var alveg glatað, alveg glatað. Maður eiginlega bara skammast sín," sagði Sigurður Arnar að leikslokum. Hann var spurður út í framtíðina sína og talaði þá um að framundan hjá sér sé aðgerð og svo bataferli. Hann sé staðráðinn í því að svara fyrir lélegt tímabil í ár með frábæru tímabili á næsta ári. „Ég ætla að koma alvöru inn á næsta ári.
„Við vorum bara lélegir í dag, mér fannst KA vera miklu, miklu betri en við og 5-1 hefði kannski mátt vera stærra. Ungu strákarnir sem gáfu okkur orku síðast voru sprækir í dag, ég hefði viljað hafa þá áfram inná því þeir allavega voru að leggja sig fram. Það er alveg klárt að það voru ekki allir að leggja sig fram. Það er kannski búið að vera í fleiri leikjum, þú færð bara það sem þú leggur inn og þess vegna erum við að falla.
„Það er búið að tala um að við séum með góðan strúktúr og uppspil og ég er sammála því, en ef við erum ekki sterkari en þetta í hausnum þá eigum við ekki meira skilið og við uppskerum bara eins og við sáum."