24.10.26 - 16:53
Ívan Guðjón Baldursson
Vonast til að starfa áfram með Eiði Smára
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA rúllaði yfir ÍBV í lokaumferð Bestu deildarinnar í dag en féll niður um deild þrátt fyrir stórsigurinn. Hallgrímur Jónasson svaraði spurningum að leikslokum.
Lestu um leikinn: KA 5 - 1 ÍBV
Haddi segist ekki sjá eftir neinu í ákvarðanatöku sinni á tímabilinu og kennir miklum meiðslavandræðum að stórum hluta um fallið.
„Það er ótrúlega sárt að fara niður. Við enduðum tímabilið frábærlega, unnum fjóra af síðustu sex, en því miður þá dugði það ekki og Þór heldur sér uppi. Við verðum að óska þeim til hamingju með það," sagði Haddi.
„Við erum með 8 langtímameidda leikmenn og það er bara of mikið. Við brugðumst við í glugganum og náðum í tvo leikmenn sem stóðu sig vel en því miður þá var það ekki nóg."
Haddi ræddi einnig um samstarf sitt við Eið Smára Guðjohnsen. Hann hefur ekki hugmynd um hvort Eiður haldi áfram í þjálfarateyminu, en vonar það.
„Ég held að fólk sem hefur horft á KA undanfarið sjái það að þetta var góð ákvörðun. Við væntanlega setjumst niður núna og skoðum málin varðandi framtíðina, ég á eitt ár eftir. Núna fer maður að sleikja sárin og getur byrjað að hugsa skírt á morgun.
„Það góða við að lenda í mikið af meiðslum er að það er mikið af ungum KA-strákum sem fengu mikinn spiltíma í sumar, stóðu sig vel og eru búnir að vaxa."