24.10.26 - 14:57
Brynjar Ingi Erluson
Hlín allt í öllu hjá Malmö - Ída Marín skoraði tvö

Hlín skoraði og lagði upp fyrir Malmö

Mynd: Malmö

Ída Marín heldur áfram að gera góða hluti með Hammarby

Mynd: Hammarby

Hlín skoraði og lagði upp fyrir Malmö

Mynd: Malmö

Íslensku atvinnukonurnar voru í miklum ham í dag.
Daníela Dögg Guðnadóttir var í byrjunarliði Álasunds og lagði upp fyrsta mark leiksins fyrir Katarinu Sunde í upphafi síðari hálfleiks. Álasund bætti tveimur mörkum við og tryggði sér öruggan 3-0 sigur, en liðið er í öðru sæti deildarinnar með 50 stig, aðeins einu stigi á eftir Brann sem vann 1-0 sigur á Vålerenga.
Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Brann á meðan Fanney Inga Birkisdóttir og Arna Eiríksdóttir byrjuðu hjá Vålerenga, sem er í fjórða sæti með 38 stig.
Ída Marín Hermannsdóttir var í aðalhlutverki hjá Hammarby þegar liðið vann 3-0 sigur á Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni. Hún skoraði tvö marka liðsins, en Freyja Stefánsdóttir og María Catharina Ólafsdóttir Gros komu báðar inn af bekknum hjá Djurgården.
Hammarby er í öðru sæti deildarinnar með 56 stig á meðan Djurgården situr í níunda sæti með 27 stig.
Hlín Eiríksdóttir lét einnig að sér kveða í Svíþjóð þegar hún skoraði og lagði upp mark í 2-1 sigri Malmö á Kristianstad. Hlín kom Malmö yfir á 32. mínútu og lagði síðan upp annað mark liðsins þegar hálftími var eftir af leiknum.
Alexandra Jóhannsdóttir, Elísa Lana Sigurjónsdóttir og Guðný Árnadóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad. Malmö er í þriðja sæti með 46 stig en Kristianstad í því fjórða með 35 stig.