Fotbolti.net
24.10.26 - 13:37
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Portsmouth kom til baka og vann

Waddingham tryggði Portsmouth endurkomusigur á Millwall

Waddingham tryggði Portsmouth endurkomusigur á Millwall

Canon

Mynd: Portsmouth

Portsmouth vann sinn þriðja sigur í síðustu fjórum deildarleikjum þegar liðið lagði Millwall að velli í ensku B-deildinni í dag.
Portsmouth hefur verið á góðu skriði undanfarið, en það stefndi ekki í góðan dag hjá liðinu þegar Millwall komst yfir strax á sjöttu mínútu með marki Jenson Metcalfe.

Forystan entist þó aðeins í tíu mínútur því Lyndon Dykes varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net og jafna metin fyrir Portsmouth.

Þegar átta mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma steig Thomas Waddingham fram og skoraði sigurmark Portsmouth sem fer upp í áttunda sæti deildarinnar.

Portsmouth hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum deildarleikjum sínum og gert eitt jafntefli.

Norwich vann þá 3-1 sigur á Charlton á meðan Sheffield United og Derby County skildu jöfn, 1-1, á Bramall Lane.

Charlton Athletic 1 - 3 Norwich
1-0 Charlie Kelman ('10 )
1-1 Paris Maghoma ('35 )
1-2 Mathias Kvistgaarden ('50 )
2-2 Ivan Mesik ('76 , sjálfsmark)

Portsmouth 2 - 1 Millwall
0-1 Jenson Metcalfe ('6 )
1-1 Lyndon Dykes ('16 , sjálfsmark)
2-1 Thomas Waddingham ('82 )

Sheffield Utd 1 - 1 Derby County
0-1 Bobby Clark ('37 )
1-1 Patrick Bamford ('79 )
Rautt spjald: Dion Sanderson, Derby County ('66)

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough12+1025
2Swansea12+623
3West Ham12+1722
4Birmingham12+921
5West Brom12+321
6Southampton12+1220
7QPR12+520
8Stoke City12+220
9Wolves12+319
10Portsmouth12+118
11Blackburn12+116
12Sheffield Utd12+116
13Millwall12-115
14Wrexham12-115
15Bristol City12-315
16Charlton Athletic12-714
17Bolton12-714
18Lincoln City12-1013
19Cardiff City12+112
20Norwich12-212
21Watford12-912
22Burnley12-59
23Derby County12-117
24Preston NE12-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.