Fotbolti.net
24.10.26 - 16:44
Brynjar Ingi Erluson

Cecilía hélt hreinu fjórða leikinn í röð - Sigdís Eva opnaði markareikninginn

Cecilía Rán er að gera frábæra hluti á Ítalíu

Cecilía Rán er að gera frábæra hluti á Ítalíu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kvennaboltinn
Sigdís Eva Bárðardóttir skoraði sitt fyrsta mark í sænsku úrvalsdeildinni á tímabilinu þegar Norrköping vann 5-0 stórsigur á Uppsala í dag.
Víkingurinn er á sínu þriðja tímabili með Norrköping en hefur enn ekki náð að festa sig í sessi hjá liðinu.

Hún nýtti hins vegar tækifærið heldur betur í dag þegar hún kom inn af bekknum um tíu mínútum fyrir leikslok.

Norrköping var þá 3-0 yfir og aðeins sex mínútum eftir að hún kom inn á var hún búin að bæta við fjórða markinu.

Þetta var jafnframt hennar fyrsta deildarmark á tímabilinu, en Norrköping er í harðri fallbaráttu og situr í tólfta sæti með 23 stig.

Heiða Ragney Viðarsdóttir kom inn af bekknum hjá Eskilstuna sem vann 2-1 sigur á Brommapojkarna. Eskilstuna er í áttunda sæti með 30 stig.

Selma Sól Magnúsdóttir spilaði síðustu mínúturnar fyrir Rosenborg sem vann 2-0 sigur á Hönefoss í norsku úrvalsdeildinni. Selma Sól er smám saman að ná sér á strik eftir erfið meiðsli og skoraði meðal annars í síðasta leik. Rosenborg er í þriðja sæti með 42 stig.

Þá hélt Cecilía Rán Rúnarsdóttir hreinu þegar Inter gerði markalaust jafntefli við Napoli í Seríu A á Ítalíu. Bæði hún og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir voru í byrjunarliðinu, en Inter er í öðru sæti með tíu stig eftir fjóra leiki.

Cecilía hefur þar með haldið hreinu í öllum fjórum deildarleikjum Inter á tímabilinu, sem er hreint út sagt magnaður árangur.
Sigdís Eva skoraði fyrir Norrköping

Sigdís Eva skoraði fyrir Norrköping

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.