Fotbolti.net
24.10.26 - 14:19
Brynjar Ingi Erluson

Aron Sig jafnaði markametið

Aron Sig jafnaði markametið

Aron Sig jafnaði markametið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sigurðarson var rétt í þessu að jafna markametið í efstu deild er hann skoraði 21. mark sitt á tímabilinu.
Lestu um leikinn: KR 5 - 2 Breiðablik
Aron var kominn með 20 mörk fyrir leikinn í dag, en markaskorunin hafði verið heldur treg undanfarið. Hann skoraði þrennu gegn KA þann 23. ágúst en ekki skorað síðan.

Lokaumferðin stendur nú yfir og Aron var ekki lengi að láta til sín taka. Hann kom KR yfir gegn Blikum á 11. mínútu og jafnaði þar með markamet Benonýs Breka Andréssonar frá árinu 2024.

Metið er því nú í eigu tveggja KR-inga, en Aron hefur enn nægan tíma til að bæta við sig marki og eignast það einn.

Það verður spennandi að sjá hvort honum takist að skrifa sig einan í sögubækurnar áður en yfir lýkur.

„Arnór Ingvi fær boltann úi hægra megin og hann er með mikið pláss. Arnór kemst upp að endamörkum og leggur boltann út á Aron Sig sem stýrir boltanum með vinstri fæti í fjærhornið, laglega gert. Aron jafnar markametið og KR-ingar taka forystuna!“ segir í lýsingu Andra Stefánssonar, fréttaritara Fótbolta.net, sem er á Meistaravöllum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.