24.10.26 - 13:24
Brynjar Ingi Erluson
England: Villa fyrst til að leggja Man City að velli

Jackson er sjóðandi heitur með Villa en hann gerði bæði mörk liðsins í dag.

Mynd: EPA

Erling Braut Haaland skoraði eina mark City

Aston Villa 2 - 1 Manchester City
1-0 Nicolas Jackson ('6 )
1-1 Erling Haaland ('52 )
2-1 Nicolas Jackson ('60 )
1-0 Nicolas Jackson ('6 )
1-1 Erling Haaland ('52 )
2-1 Nicolas Jackson ('60 )
Aston Villa varð fyrsta liðið til að leggja Manchester City að velli í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu þegar liðið vann 2-1 sigur á Villa Park í áttundu umferð deildarinnar í dag.
Villa-menn fengu draumabyrjun og komust yfir strax á sjöttu mínútu eftir afar klaufaleg mistök Marc Guehi, miðvarðar City. Hann missti boltann frá sér eftir misheppnaða móttöku þar sem boltinn fór af fæti hans í hnéð og þaðan beint til John McGinn. Hann fann Nicolas Jackson sem lék laglega á Elliot Anderson áður en hann þrumaði boltanum upp í þaknetið.
City-menn voru greinilega slegnir út af laginu í byrjun en tóku fljótlega við sér og sóttu af krafti. Iliman Ndiaye átti tvær hættulegar tilraunir, þá fyrri varði Zion Suzuki en sú síðari hafnaði í stönginni. Gestirnir vildu einnig fá vítaspyrnu þegar Enzo Fernandez féll í teignum, en dómarinn lét leikinn halda áfram.
Sama lína var uppi hinum megin á vellinum þegar Villa-menn kölluðu eftir vítaspyrnu eftir að Anderson hafði keyrt harkalega í Johan Manzambi inni í vítateignum. Enn flautaði dómarinn ekki.
City-menn komu af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og jöfnuðu á 52. mínútu. Aukaspyrna var þá leikin út á Ndiaye á hægri kantinum og hann sendi frábæran bolta inn í teiginn þar sem Erling Braut Haaland mætti af miklum krafti og skallaði í netið.
Staðan var þó jöfn í aðeins í átta mínútur því Jackson kom Villa aftur yfir eftir sendingu frá varamanninum Ibrahim Mbaye. Jackson var snöggur að láta vaða og Gianluigi Donnarumma náði að verja skotið, en ekki betur en svo að boltinn fór í netið. Ítalinn hefði líklega átt að gera betur.
City-menn reyndu að koma sér aftur inn í leikinn en höfðu ekki erindi sem erfiði og fyrsta tap liðsins í deildinni á tímabilinu varð staðreynd.
Villa virðist hins vegar vera að finna sitt gamla form og hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Liðið fer upp í sjötta sæti með ellefu stig á meðan City heldur toppsætinu með 21 stig.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 8 | +11 | 21 |
| 2 | Arsenal | 8 | +7 | 21 |
| 3 | Brighton | 7 | +18 | 16 |
| 4 | Chelsea | 7 | +4 | 13 |
| 5 | Liverpool | 7 | +1 | 12 |
| 6 | Aston Villa | 8 | -3 | 11 |
| 7 | Brentford | 7 | +5 | 10 |
| 8 | Leeds | 7 | +3 | 10 |
| 9 | Everton | 8 | 0 | 10 |
| 10 | Ipswich Town | 8 | -4 | 10 |
| 11 | Hull City | 7 | +1 | 9 |
| 12 | Newcastle | 7 | -4 | 8 |
| 13 | Man Utd | 7 | 0 | 7 |
| 14 | Crystal Palace | 7 | -8 | 7 |
| 15 | Coventry | 8 | -8 | 7 |
| 16 | Fulham | 8 | -3 | 6 |
| 17 | Bournemouth | 7 | -4 | 6 |
| 18 | Tottenham | 7 | -4 | 6 |
| 19 | Nott. Forest | 8 | -4 | 6 |
| 20 | Sunderland | 7 | -8 | 4 |