24.10.26 - 16:41
Andri Stefánsson
Aron Sig bætti markametið: Léttir!
Auglýsing

Aron bætti markametið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron bætti markametið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tók á móti Breiðabliki í síðustu umferð Bestu deildar karla. Leikar enduðu með 8-3 sigri KR og Fótbolti.net ræddi við Aron Sigurðarson sem bætti markametið eftir leik.

TENGT EFNI
Aron Sigurðar bætti markametið
Þetta var ellefu marka leikur. Hvernig var að spila í þessum leik?
„Já, það var kannski pínu fílingur eins og þetta væri bara að klára tímabilið, sérstaklega kannski þeirra megin, ég veit það ekki. Mér fannst þetta ekki alveg eins og að spila einhvern mótsleik, pínu skrítið. En við kláruðum þetta.“
Þú slóst markametið, magnaður árangur og til hamingju með það. Hvernig er tilfinningin að ná þessum sögulega árangri?
„Það er bara léttir. Ég var ekki vanur því að fara í gegnum nokkra leiki í sumar án þess að skora. Ég hef tvisvar farið í gegnum tvo leiki án þess að skora og það var það mesta. Síðan auðvitað slær maður þetta í lokaleiknum og það var búið að taka eitthvað mark af manni sem var mesta þvæla sem ég hef upplifað. Það er önnur umræða.“
Það var kannski komið smá stress undir lokin þegar þú varst ekki enn búinn að skora annað marki'?
„Já, auðvitað var stress. Ég var í versta falli að fara að jafna þetta met, en það var bara ljúft að klára þetta á 89. mínútu. Bara flott að ná að klára þetta.“
Nú er tímabilinu hjá KR lokið. Ertu sáttur með tímabilið?
„Já, ég er mjög sáttur með tímabilið. Við tókum alveg þvílík skref fram á við, bæði andlega og fótboltalega. Þetta var mjög flott tímabil og við eigum að byggja á þessu. Það er gott að sýna að við getum klárað svona leiki og tekið það með okkur inn í næsta tímabil, orðið betri og sterkari.“

Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 26 | +30 | 53 |
| 3 | Fram | 26 | +9 | 46 |
| 4 | ÍA | 27 | -1 | 38 |
| 5 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 6 | Keflavík | 27 | -11 | 30 |