Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 24. nóvember 2020 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Einkunnir Man Utd gegn Basaksehir: Fjórir sem fá 8
Þessir fá báðir 8 í einkunn.
Þessir fá báðir 8 í einkunn.
Mynd: Getty Images
Manchester United vann flottan sigur gegn Istanbul Basaksehir á heimavelli í Meistaradeildinni í kvöld.

Bruno Fernandes skoraði tvennu fyrir United og voru þeir Marcus Rashford og Daniel James einnig á skotskónum í 4-1 sigri. Man Utd er á toppi riðils síns í Meistaradeildinni með níu stig eftir fjóra leiki.

Úrslit kvöldsins:
Meistaradeildin: Man Utd aftur á sigurbraut - Stórlið áfram

Staðarmiðillinn Manchester Evening News gefur leikmönnum Man Utd einkunnir fyrir leikinn í kvöld og má sjá þær hér að neðan.

Man Utd: De Gea 6, Wan-Bissaka 6, Lindelöf 6, Maguire 6, Telles 7, Van de Beek 7, Fred 7, Rashford 8, Fernandes 8, Martial 7, Cavani 8.

Varamennirnir: Tuanzebe 5, Greenwood 6, James 6, Williams 5, Matic 5.

Stjórinn: Ole Gunnar Solskjær, 8.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner