Fotbolti.net
28.10.26 - 09:28
Elvar Geir Magnússon

Omar Sowe kominn í KR (Staðfest)

Omar Sowe skrifar undir í Vesturbænum.

Omar Sowe skrifar undir í Vesturbænum.

Canon

Mynd: KR

Framherjinn Omar Sowe hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en hann kemur til félagsins frá ÍBV.

Omar, sem er 26 ára gamall, hefur spilað með Breiðabliki, Leikni og ÍBV hér á landi og skorað 52 mörk í 109 leikjum.

Hann er alinn upp hjá New York Red Bulls í Bandaríkjunum og kom fyrst til Íslands árið 2022 og varð þá Íslandsmeistari undir stjórn Óskars Hrafns Þorvaldssonar, núverandi þjálfara KR, hjá Breiðabliki.

„Við bjóðum Omar velkominn og hlökkum til að sjá hann í KR-treyjunni á komandi tímabili," segir í tilkynningu KR.

Sowe er 26 ára og skoraði sex mörk í sextán leikjum með ÍBV í Bestu deildinni en hann var að snúa aftur eftir erfið meiðsli. Eyjamenn féllu úr deildinni.

Það komu fréttir af því í sumar að KR hefði áhuga á Sowe sem var að renna út á samningi í Eyjum. Í síðasta mánuði sagði Fótbolti.net frá því að hann væri með samkomulag við KR en ætti bara eftir að standast læknisskoðun. Nú er allt í höfn og samningur Sowe við KR tekur gildi núna í nóvember.

KR hafnaði í öðru sæti Bestu deildarinnar og er á leið í forkeppni Sambandsdeildarinnar á næsta ári.
Omar Sowe kominn í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.