Matthías Daði skoraði þrennu með ÍA í Lengjubikarnum á dögunum. Hann varð bikarmeistari með 2. flokki ÍA í fyrra og árið þar áður. 2025 var hann í stóru hlutverki hjá Kára í 2. deildinni, skoraði sex mörk í 19 leikjum.
Hann er alinn upp á Snæfellsnesi en hélt á Skagann árið 2022. Árið 2024 lék hann sinn fyrsta og eina keppnisleik með ÍA til þessa. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Hann er alinn upp á Snæfellsnesi en hélt á Skagann árið 2022. Árið 2024 lék hann sinn fyrsta og eina keppnisleik með ÍA til þessa. Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Matthías Daði Gunnarsson
Gælunafn: Matti
Aldur: 19 ára
Hjúskaparstaða: Á föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Það var árið 2021 með Reyni Hellissandi. Það var reynt að kæra leikinn því ég var ekki skráður í liðið og var því „ólöglegur“. Fín byrjun á meistaraflokksferlinum
Uppáhalds drykkur: Ískalt Pepsi Max
Uppáhalds matsölustaður: KFC stendur alltaf fyrir sínu
Uppáhalds tölvuleikur: FIFA – hef líklega spilað aðeins of mikið af því.
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei, held mig bara við fótboltann.
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Game of Thrones, mæli klárlega með.
Uppáhalds tónlistarmaður: Kanye West.
Uppáhalds hlaðvarp: Dr. Football og Blökastið.
Uppáhalds samfélagsmiðill: TikTok og Instagram.
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fótbolti.net, þarf að fylgjast með.
Fyndnasti Íslendingurinn: Sveppi og Doccarinn, ekki annað hægt en að hlæja þegar þeir byrja.
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: „Skoraðiru svo bara þrennu, mörðurinn þinn?“
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Ég segi bara gamla góða frasann, aldrei að segja aldrei
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Örugglega Daníel Tristan, rosalega efnilegur og með mikil gæði.
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Ejub Purisevic og Siggi Jóns, báðir haft mikil áhrif á mig.
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Jón Gísli. Ég hef bæði æft með honum og spilað á móti honum og það er nánast ómögulegt að ná boltanum af honum
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Pabbi og Messi.
Sætasti sigurinn: Sigurinn á Fylki í Mjólkurbikarnum með Kára árið 2025.
Mestu vonbrigðin: þegar Kári tapaði í vítaspyrnukeppni á móti Stjörnunni í Mjólkurbikarnum 2025.
Uppáhalds lið í enska: Arsenal - COYG!
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Líklegast Gylfi Þór Sigurðsson. Hef lengi fylgst með honum og það væri gaman að fá hann upp á Skaga og fá nokkrar stungusendingar frá honum.
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Gabríel Snær Gunnarsson, hann minnir mig á ungan Luis Suárez.
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Klárlega Erik Tobias, fjallmyndarlegur maður.
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Sveindís Jane.
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi 100 prósent
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Ég myndi vilja að dómarar mættu stoppa klukkuna þegar andstæðingur er að tefja leikinn.
Uppáhalds staður á Íslandi: Heimabærinn minn Ólafsvík.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Þegar ég skoraði mitt fyrsta meistaraflokksmark í fyrsta leiknum mínum eftir að ég kom til baka úr krossbandaslitum. Það var geggjuð tilfinning.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei ekkert svoleiðis.
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já, dýrka píluna og fylgist líka smá með UFC
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Nike Mercurial Vapor.
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Íslensku!!
Vandræðalegasta augnablik: Þegar ég hélt að ég væri í hóp, mætti í leikinn og fór á fund og sá svo á liðslistanum að ég var ekki einu sinni með. Fór bara mjög hljóðlega heim.
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Ég myndi bjóða Páli Gísla hann myndi sjá um matinn. Marinó Hilmar kemur til að halda stemningunni uppi og svo Gummi Tóta til að syngja nokkur lög.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Steinar Þorsteins fær vinningin kemur mönnum í gang.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég myndi taka Hauk Andra í Survivor… væri fróðlegt að sjá það
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Á einum tímapunkti átti ég fjóra meistaraflokksleiki og allir með sitthvoru liðinu. Ekki eitthvað sem allir geta sagt.
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Styrmir Jóhann vissi ekki að einn maður gæti verið svona grillaður
Hverju laugstu síðast: Ég laug að mömmu og sagðist hafa ryksugað allt húsið… það var ekki alveg satt.
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Maraþon upphitun og flóknar sendingaræfingar.
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Ég myndi spyrja Arsène Wenger hvort hann gæti ekki komið og sýnt Mikel Arteta hvernig maður vinnur nokkra titla
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Vonandi sjáum við sem flesta á vellinum í sumar, við ætlum að gera okkar besta fyrir Skagann!
Athugasemdir


