Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
banner
   mið 25. mars 2026 16:31
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Átti sinn besta leik gegn Shakhtar
Mynd: EPA

„Það er bara mjög gaman, það er gott að koma heim og hitta strákana, mikilvægir leikir framundan þannig að ég er mjg sáttur að fá að taka þátt í þessu," sagði Gísli Gottskálk Þórðarson leikmaður U21 landslið Íslands og leikmaður Lech Poznan fyrir æfingu U21 landsliðsins í dag. Framundan hjá liðinu er leikur gegn Eistlandi á morgun og svo útileikur gegn Frökkum í undankeppni EM.


Svekktur að hafa ekki fengið kallið í A landsliðið?

„Nei, auðvitað vill maður alltaf vera í A landsliðinu. En ég átti gott samtal við Arnar (Gunnlaugsson) og við ræddum það að það væri gott fyrir mig að fá góðar mínútur og mikilvægur gluggi hjá U21. Þannig að ekkert svekkelsi með það fyrst að það var góð ástæða fyrir því. Ég er bara mjög sáttur að fá að taka þátt í þessu. Það eru tveir mikilvægir leikir hérna og ég er ennþá gjaldgengur, ég var mjög sáttur að fá að hjálpa þeim og hef ekkert út á það að setja. Það eru tveir ólíkir leikir framundan og við stefnum klárlega á þrjú stig á morgun. Við horfum svo í seinni leikinn þegar að því kemur."

 Hvernig líður þér úti í Poznan?

„Bara mjög vel. Mér líður mjög vel í Póllandi, sérstaklega núna þar sem ég er kominn aðeins aftur inn í þetta eftir meiðslin. Þurfti aðeins að bíða eftir tækifærinu. En núna er ég að spila mikið og það hefur verið að ganga vel og bara mikilvægir leikir, berjast um titilinn og stórir leikir í Evrópu. Mér líður mjög vel."

Þú fékkst traustið gegn Shakhtar Donetsk, hvernig gekk?

„Það gekk mjög vel, það leit ekkert vel út eftir fyrri leikinn, vorum 3-1 undir en svo fékk ég að byrja þann leik, ég myndi persónulega segja að það hafi verið minn besti leikur á tímabilinu so far, það gekk mjög vel. Vorum grátlega nálægt því að fara í gegn, það var smá svekkelsi en bara fínt að vera kominn aftur inn í þetta og mér líður vel með þetta."

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Slapp
banner
banner