Liverpool og Man Utd vilja Raum - Chelsea og Arsenal eltast við Hall - Verbruggen lítur í kringum sig
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
Sextán ára hetja KR - „Er það ekki sem fólkið vill?“
Óskar Hrafn: Svona frammistaða í fyrra hefði skilað okkur 4-3 tapi
Diljá Ýr: Mörkin liggja í loftinu
Ingibjörg: Maður lærir ótrúlega mikið af þessum leikjum
Sandra María: Sallaróleg og veit að mörkin koma
Viggó ánægður að vera kominn aftur heim
Aleksandar Linta: Eigum séns gegn Val
Jói Kalli: Litlir í okkur í fyrri hálfleik
Hlín Eiríks: Það er ekki hægt að vinna fótboltaleik nema maður skori
   mið 25. mars 2026 15:27
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
Júlíus Mar Júlíusson.
Júlíus Mar Júlíusson.
Mynd: Fótbolti.net
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Aðsend

„Mér líst bara vel á þá, þeir eru góðir á boltanum og vilja spila úr öllu. Hafa verið góðir in game en kannski ekki náð í mörg stig. Þetta er erfiður andstæðingur og við þurfum að spila vel til þess að vinna þennan leik en það er okkar að klára það" sagði Júlíus Mar Júlíusson leikmaður u21 landslið Íslands og Kristiansund fyrir leikinn gegn Eistlandi á morgun.


Þrátt fyrir að þeir séu lengst niðri í riðlinum þá má ekki vanmeta Eistland?

„Nei, akkúrat. Við erum gott lið en við þurfum allir að eiga okkar besta dag til þess að vinna þennan leik og leggja allt í sölurnar til þess að ná í þrjá punkta sem eru mikilvægir fyrir okkur. Því að við erum í góðri stöðu og það er bara undir okkur komið að klára dæmið."

Í síðasta leik gegn Eistum fékkstu rautt spjald, hvað gerðist?

„Það var skrýtið. Það voru bara tvö brot rétt fyrir hálfleik. Eitt út á kanti sem mér fannst vera gult spjald og tók því alveg á kassann. Seinna var samt svona vafasamt. Maður fékk rautt og það er bara eins og það er og bara eitthvað til þess að læra af."

Ósáttur?

„Jú, mjög ósáttur. Það var flott frammistaða hjá strákunum eftir að ég fór út af. Þannig að það var mjög vel gert að ná í eitt stig þótt að við höfum átt þrjú stig skilið, en jú það var mjög svekkjandi."

Hvernig líst þér á restina af riðlinum, eru möguleikar?

„Já, hundrað prósent. Við erum með gott lið og í síðustu leikjum hefur þetta verið að koma og við erum búnir að spila vel, með góðan hóp. Við þurfum að fókusa á næsta leik. Alltaf einn leikur í einu, mæta sterkir og klárir í slaginn á morgun."

Kristansund byrjar vel í deildinni, var óvænt að fara beint í byrjunarliðið?

„Nei, í rauninni ekki. Ég var búinn að spila alla æfingaleikina á undan. Það var bara markmið hjá mér að koma beint út og leggja allt í sölurnar og komast í liðið. Sem betur fer meiðslafrír og búin að standa mig vel á æfingum og fékk þess vegna að spila leikinn og það var bara mjög gaman."

Hvernig liður þér að vera mættur í Kristiansund?

„Það er bara geggjað. Ný áskorun, það var kominn tími á það. Hausinn vildi fara út og það er gaman að prófa eitthvað nýtt en að búa á Íslandi og að komast inn í nýtt umhverfi, bara geggjað so far."

Hvernig líður þér að hafa unnið gegn íslendingaliðinu Brann?

„Mjög vel. Maður má ekki gleyma sér í gleðinni, en það var geggjað að gera það. Það er bara einn dagur í einu og áfram gakk. Leikur á morgun og fókus á það."

Besta deildin er að fara að byrja, ertu með spá fyrir KR menn í sumar?

„Ég held að ef allt gengur eins og í fyrra áttum við gott undirbúningstímabil og núna hefur það líka verið gott. Ég ætla að vona að það verði meiri stöðugleiki á liðinu og liðið er með frábæra leikmenn. Þeir geta gert atlögu að efstu sætunum, klárlega. Það er mín spá."


Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Frakkland 6 5 0 1 21 - 4 +17 16
2.    Sviss 7 4 1 2 10 - 5 +5 14
3.    Ísland 7 3 2 2 14 - 9 +5 11
4.    Færeyjar 7 3 4 0 6 - 13 -7 9
5.    Lúxemborg 6 1 4 1 7 - 14 -7 4
6.    Eistland 7 0 5 2 8 - 21 -13 2
Slapp
banner