Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
Óskar Smári eftir sigurinn: „Ætli ég fari ekki bara til Tenerife í tvær vikur“
Jón Óli: Bjartsýnn á Allison og feginn með frábæra byrjun
Anton Ingi: Það opnuðust flóðgáttir í vörninni
Guðni Eiríks: Ég kenndi henni þetta í 8. flokki
Einar Guðna: Þetta var mjög skrítið
Tekur tapið á sig - „Þór/KA mun komast upp úr þessu"
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
   mið 25. mars 2026 17:20
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

„Það er bara skemmtilegt, þetta er áskorun. Ég náttúrulega þekki þá, ég var með Óla Skúla með í þessu liði, þekki þessa gaura, er búin að vinna með þeim lengi. Þannig að það er ánægjulegt að fá þetta traust og að vinna með Óla Kristjáns er bara geggjað. Ég er bara peppaður" sagði Lúðvík Gunnarsson þjálfari u21 landsliðið eftir að hafa fengið traustið til þess að stýra liðinu áfram.


Er gott að fá Daníel, Gísla og Viktor inn í hópinn?

„Ekki spurning. Þetta eru allt gæða leikmenn sem hafa sýnt það og sannað með félögum sínum og Gísli og Daníel Tristan með A landsliðinu. Þetta eru topp leikmenn og þeir munu án efa styrkja okkar hóp. Það er bara frábært."

Var valið í hópinn erfitt?

„Þetta er alltaf erfitt, við höfum lagt mikla áherslu á það að tala um það við þessa drengi að þessi hópur sé stór, þessi hópur er breiður og það eru oft breytingar á milli leikja. Stundum ertu valinn og stundum ekki, það er svolítið með tilliti til hvernig gerðin eða hvernig samsetning á hóp er. Það hefur alltaf verið erfitt að velja þessa hópa, við lendum í því núna að það eru einhverjir frá vegna meiðsla og við erum heppnir við fáum Daníel Tristan, Viktor Bjarka og Gísla Gotta inn. Ég meina þetta er bara höfuðverkur þjálfarans, margir góðir leikmenn, þetta er alltaf krefjandi."

Eru góðir möguleikar að komast á EM?

„Þeir sem hafa fylgst með riðlinum, þeir sjá að það getur allt gerst það eru einhvern veginn allir að ná í stig af öllum nema kannski Frökkum. Riðillinn er galopinn eins og staðan er núna, við vorum með tvö stig eftir þrjá leiki en ef það gengur vel á morgun þá eigum við möguleikana á að vera í öðru sæti eftir leikinn annað kvöld. Það er alveg möguleiki, við höfum ákveðið að hugsa þetta þannig við ætlum að fara fulla ferð, það er ekkert annað. Ef við okkur langar í eitthvað þá verðum við að fara að sækja það, það er enginn sem mun koma og afhenda okkur eitthvað á silfurfati. Þetta er bara í okkar höndum algjörlega. Eftir þennan glugga þá eru þrír leikir  í haust en við þurfum að byrja á því að ná í góð úrslit á leiknum á morgun, það er eiginlega forsendan fyrir því að eiga möguleika í haust."


Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Frakkland 6 5 1 0 21 - 4 +17 16
2.    Sviss 7 4 2 1 10 - 5 +5 14
3.    Ísland 7 3 2 2 14 - 9 +5 11
4.    Færeyjar 7 3 0 4 6 - 13 -7 9
5.    Lúxemborg 6 1 1 4 7 - 14 -7 4
6.    Eistland 7 0 2 5 8 - 21 -13 2
Slapp
banner
banner