Fotbolti.net
25.04.25 - 12:40
Elvar Geir Magnússon

Jarlinn tók flautuna af hillunni

Jarlinn tók flautuna af hillunni
Canon

Mynd: Aðsend

Gunnar Jarl Jónsson tók fram flautuna og dæmdi æfingaleik Selfyssinga og Þróttara sem fram fór á Selfossi í gær.

Jarlinn hafði í nægu að snúast í leiknum, gaf þrjú gul, eitt rautt og dæmdi vítaspyrnu í 3-0 sigurleik Þróttar. Hann þótti dæma óaðfinnanlega að sögn heimildarmanns.

Gunnar hafði ekki dæmt meistaraflokksleik síðan 2019 og þrátt fyrir að hann hafi ákveðið að taka flautuna af hillunni í þessum leik er þó ekki endurkoma í kortunum.
Tveggja Turna Tal - Gunnar Jarl Jónsson
TENGT EFNI

Tveggja Turna Tal - Gunnar Jarl Jónsson

Hann var einn allra besti dómari landsins á sínum tíma og var valinn dómari ársins á Íslandi af Fótbolta.net 2012 og 2014.

Hann starfar í dag sem þjálfari dómara og situr í dómaranefnd KSÍ.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.