PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 16:03
Brynjar Ingi Erluson
Lengjudeildin: Jafnt á Ísafirði - Þróttur vann Njarðvík
Lengjudeildin
Þróttarar fagna gegn Njarðvíkingum
Þróttarar fagna gegn Njarðvíkingum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sergine Fall gerði jöfnunarmark Vestra
Sergine Fall gerði jöfnunarmark Vestra
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. vann Njarðvík, 2-0, í 1. umferð Lengjudeildarinnar í dag, en á sama tíma gerðu Vestri og Grindavík 1-1 jafntefli á Kerecis-vellinum á Ísafirði.

Þrótturum er spáð efsta sætinu í Lengjudeildinni í ár á meðan Njarðvíkingum er spáð þriðja sæti. Það var því alvöru toppslagur í fyrsta leiknum þar sem Þróttarar höfðu betur með tveimur mörkum í síðari hálfleik.

Fyrri hálfleikurinn var ekki mikið fyrir augað en í þeim síðari skoruðu Þróttarar með þrettán mínútna millibili.

Þróttarar gerðu hratt fram völlinn og fékk Sigurður Egill Lárusson boltann í fínu skotfæri, en ákvað frekar að koma boltanum á Örn Braga sem kom heimamönnum í forystu.

Á 72. mínútu leiksins bætti Hlynur Þórhallsson við öðru marki. Eiður Aron Sigurbjörnsson braut klaufalega af sér fyrir utan teig og tók Tryggvi Snær Geirsson aukaspyrnuna beint á kollinn á Aroni Snæ Ingasyni sem tíaði hann upp fyrir Hlyn sem skoraði nánast með bringunni.

Virkilega góður sigur hjá Þrótturum sem fá draumabyrjun á tímabilinu.

Vestri og Grindavík skildu jöfn, 1-1, á Ísafirði.

Ingi Þór Sigurðsson kom Grindavík í verðskuldaða forystu á 19. mínútu. Rafael Victor komst upp vinstra megin, kom boltanum á Inga Þór sem skoraði með laglegri hælspyrnu.

Vestri vann sig betur inn í leikinn þegar á leið, en vantaði þó upp á gæðin.

Í þeim síðari komu Vestramenn til baka. Gunnar Jónas Hauksson keyrði af harðfylgi inn vinstra megin, kom boltanum á Sergine Fall sem jafnaði leikinn.

Vestri var líklegra liðið eftir það og átti nokkrar tilraunir til að skora, en Grindvíkingar vörðust vel. Undir lok leiks fékk Konstantin Cheshmedjiev, leikmaður Vestra, rautt spjald fyrir heimskulega tæklingu.

Mörkin urðu ekki fleiri á Ísafirði og niðurstaðan 1-1 jafntefli.

Þróttur R. 2 - 0 Njarðvík
1-0 Örn Bragi Hinriksson ('60 )
2-0 Hlynur Þórhallsson ('73 )
Lestu um leikinn

Vestri 1 - 1 Grindavík
0-1 Ingi Þór Sigurðsson ('19 )
1-1 Sergine Modou Fall ('58 )
Lestu um leikinn
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    ÍR 1 1 0 0 7 - 4 +3 3
2.    Fylkir 1 1 0 0 3 - 0 +3 3
3.    Þróttur R. 1 1 0 0 2 - 0 +2 3
4.    Grindavík 1 0 1 0 1 - 1 0 1
5.    Vestri 1 0 1 0 1 - 1 0 1
6.    Grótta 0 0 0 0 0 - 0 0 0
7.    HK 0 0 0 0 0 - 0 0 0
8.    Leiknir R. 0 0 0 0 0 - 0 0 0
9.    Völsungur 0 0 0 0 0 - 0 0 0
10.    Njarðvík 1 0 0 1 0 - 2 -2 0
11.    Afturelding 1 0 0 1 4 - 7 -3 0
12.    Ægir 1 0 0 1 0 - 3 -3 0
Slapp
banner
banner