Leik Fylkis og ÍBV sem fer fram í kvöld og mun hefjast klukkan 17:00 en ekki 18:00 eins og stóð til upphaflega.
Fylkismenn ætla að opna stúkuna klukkan 16:00 fyrir þau sem ætla að kíkja á völlinn.
Leikurinn er liður í 32 liða úrslitum Mjólkurbikars karla en honum er flýtt að ósk Eyjamanna til að fjölmenna bæði á bikarleikinn í fótbolta og þriðja leik í úrslitakeppninni í handboltanum.
Fylkir er í Lengjudeildinni og er á toppi deildarinnar eftir þrjár umferðir.
ÍBV er í næst neðsta sæti Bestu-deildarinnar eftir sjö umferðir.
Athugasemdir