25.06.05 - 15:23
Magnús Már Einarsson
Njarðvík fær Raiburn frá Keflavík (Staðfest)

Njarðvík fær liðsstyrk.

Mynd: umfn.is

Njarðvík fær liðsstyrk.

Mynd: umfn.is
2.deildarlið Njarðvíkur hefur fengið enska varnarmanninn Yoma Raiburn frá Keflavík. Raiburn sem er fæddur árið 1982 kom til Keflavíkur í lok maí en hann hefur ekki náð að sanna sig hjá liðinu og aldrei verið í leikmannahópi þess.
Raiburn sem ólst upp hjá Crystal Palace hefur einnig leikið með Hayes í ensku utandeildinni. Hann gæti styrkt lið Njarðvíkinga sem eiga í harðri toppbaráttu í 2.deild.
