25.07.05 - 15:35
Magnús Már Einarsson
Hannes samdi við Stoke (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson
Framherjinn sterki Hannes Þ. Sigurðsson hefur gert þriggja ára samning við enska 1.deildarliðið Stoke og mun samningurinn taka gildi 1.janúar næstkomandi en þetta staðfesti Hannes við Fótbolti.net nú rétt í þessu.
Hannes sem hefur leikið vel með U-21 árs landsliði Íslands að undanförnu er á mála hjá Vikingi í Noregi en hann gerir sér vonir um að norska liðið og Stoke komist að samkomulagi um kaupverð og Hannes geti þannig hafið tímabilið með enska liðinu.
Eins og við greindum frá í morgun þá var Hannes einnig orðaður við WBA og þá greindu norskir fjölmiðlar frá því í dag að sænska liðið Hammarby vildi einnig fá Hannes.
Hann sagði í samtali við Fótbolti.net aðspurður út í áhuga hinna liðanna. ,, Mér skilst að einhver áhugi hafi verið en mér leist mjög vel á þetta um leið og það kom upp og ég ræddi við klúbbinn og þegar að ég heyrði um framtíðaráform þeirra leist mér mjög vel á það og ég er mjög spenntur að ganga til liðs við þá."
Sjá einnig:
Stoke og WBA leggja fram tilboð í Hannes Sig
Hin Hliðin á Hannesi (Maí 2002)