Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. júlí 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Erkifjendur kljást í Frostaskjóli
KR og Valur eigast við í kvöld
KR og Valur eigast við í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Tveir leikir eru á dagskrá í Bestu deild karla í kvöld en KR og Valur eigast við í erkifjendaslag á Meistaravöllum á meðan ÍA spilar við Fram á Akranesi.

Sumarið hjá Val og KR hefur verið dapurt til þessa. Tvö stórveldi sem hafa spilað langt undir getu en gæti leikurinn í kvöld verið vendipunktur á tímabilinu?

Valur hefur ekki unnið í síðustu þremur leikjum og situr í 5. sæti með 20 stig en KR vann síðast leik gegn FH í lok maí og er í 7. sæti með 17 stig. Ólafur Jóhannesson snýr þá aftur á hliðarlínuna hjá Val en hann tók við af Heimi Guðjónssyni á dögunum.

Botnlið ÍA fær þá Fram í heimsókn. ÍA er með 8 stig á botninum en Fram í 8. sæti með 14 stig. Framarar hafa skorað í öllum leikjum sínum í deildinni til þessa.

Leikir dagsins:

Besta-deild karla
19:15 ÍA-Fram (Norðurálsvöllurinn)
19:15 KR-Valur (Meistaravellir)

4. deild karla - A-riðill
20:00 Skallagrímur-Kría (Skallagrímsvöllur)
20:00 Árbær-KFB (Fylkisvöllur)
20:00 Ísbjörninn-Hvíti riddarinn (Kórinn - Gervigras)

4. deild karla - B-riðill
20:00 SR-RB (Þróttarvöllur)
20:00 KFK-Úlfarnir (Fagrilundur - gervigras)

4. deild karla - C-riðill
20:00 Léttir-Árborg (ÍR-völlur)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner