Fotbolti.net
25.08.19 - 16:35
Rögnvaldur Már Helgason

Alfreð: Bikardjammið búið að taka á

Auglýsing
Alfreð: Bikardjammið búið að taka á
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Þrjú frábær stig hér í dag, vinnustig. Það er ótrúlega gaman að koma hingað í blíðskaparveðri, þetta var bara geggjað," sagði Alfreð Elías Jóhannsson þjálfari Selfoss eftir sigur á Þór/KA í dag. Hann var bjartsýnn á það fyrir leik að liðið myndi sækja þrjú stig í Þorpið.
„Já, við erum í þessu til að vinna og ef það væri eitthvað annað og maður væri hræddur að koma í fótboltaleik þá værum við í röngu sporti. Við erum í þessu til að vinna og ætlum að vinna, sama hvað liðið heitir."



Vikan hefur verið erfið eftir þrjá leiki á skömmum tíma en Alfreð segir að Selfoss hafi það sem þarf til að landa þriðja sætinu.



„Það eru þrír leikir eftir, níu stig í pottinum og næsti leikur gegn Fylki heima. Það verður verðugt verkefni, nú þurfum við að safna kröftum. Það hafa verið þrír leikir á átta dögum, með bikardjammi og partíi, þetta er búið að vera dálítið erfitt og við erum fríinu fegin."



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.