Inter á eftir Guehi - Man Utd sýnir miðjumanni Chelsea áhuga - Stórlið sýna miðjumanni Lille áhuga
   sun 25. október 2020 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Kulusevski bjargaði stigi fyrir Juventus
Juventus 1 - 1 Verona
0-1 Andrea Favilli ('60)
1-1 Dejan Kulusevski ('78)

Margfaldir Ítalíumeistarar Juventus náðu ekki að sigra gegn Verona er liðin mættust í síðasta leik dagsins í Serie A.

Juve var við stjórn stærsta hluta leiksins og kom Alvaro Morata knettinum í netið undir lok fyrri hálfleiks en markið fékk ekki að standa vegna naumrar rangstöðu.

Andrea Favilli kom Verona yfir með marki eftir skyndisókn í síðari hálfleik og juku heimamenn sóknarþungan í kjölfarið. Paulo Dybala átti skot í slá skömmu áður en Dejan Kulusevski gerði fallegt jöfnunarmark. Svíinn knái gerði frábærlega að koma sér í skotfæri undir pressu frá Davide Faraoni og kláraði með laglegu skoti.

Juve reyndi að ná í sigurinn á lokakaflanum en tókst ekki þrátt fyrir hættulegar sóknir. Lokatölur urðu 1-1 og er Juventus með 9 stig eftir 5 umferðir. Verona er með 8 stig. Ítalíumeistararnir geta þakkað Svíanum sínum fyrir stigið gegn sterku varnarliði eins og Verona sem hefur aðeins fengið tvö mörk á sig hingað til.

Lærisveinar Andrea Pirlo hafa aðeins unnið einn leik og gert þrjú jafntefli í deildinni, auk þess að fá gefins sigur gegn Napoli sem mætti ekki til leiks í byrjun október vegna Covid.

Kulusevski hefur farið vel af stað hjá Juventus og er kominn með tvö mörk í fjórum deildarleikjum.
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Napoli 10 7 1 2 16 8 +8 22
2 Roma 9 7 0 2 10 4 +6 21
3 Inter 9 6 0 3 22 11 +11 18
4 Milan 9 5 3 1 14 7 +7 18
5 Juventus 10 5 3 2 13 9 +4 18
6 Como 10 4 5 1 12 6 +6 17
7 Bologna 9 4 3 2 13 7 +6 15
8 Udinese 10 4 3 3 12 15 -3 15
9 Cremonese 10 3 5 2 11 11 0 14
10 Atalanta 10 2 7 1 13 8 +5 13
11 Sassuolo 9 4 1 4 10 10 0 13
12 Lazio 9 3 3 3 11 7 +4 12
13 Torino 9 3 3 3 8 14 -6 12
14 Cagliari 9 2 3 4 9 12 -3 9
15 Parma 9 1 4 4 4 9 -5 7
16 Lecce 9 1 3 5 7 14 -7 6
17 Pisa 9 0 5 4 5 12 -7 5
18 Verona 9 0 5 4 5 14 -9 5
19 Fiorentina 9 0 4 5 7 15 -8 4
20 Genoa 9 0 3 6 4 13 -9 3
Athugasemdir
banner