25.10.26 - 11:18
Brynjar Ingi Erluson
Ravenna staðfestir að Ronaldinho ætli að taka fram skóna á ný

Mynd: Ravenna

Mynd: Ravenna
Ítalska C-deildarfélagið Ravenna hefur staðfest að fyrrum fótboltamaðurinn Ronaldinho ætli að taka fram skóna á ný og spila gegn nágrönnunum í Forli í næsta mánuði.

TENGT EFNI
Ronaldinho sagður snúa aftur á völlinn í nóvember
Ronaldinho var í hópi þeirra sem keyptu sig inn í Ravenna í sumar og lýsti hann því yfir að hann ætlaði sjálfur að spila með liðinu.
Fáir tóku þau orð þó alvarlega, enda hefur Brasilíumaðurinn ekki spilað keppnisleik í rúman áratug. Nú ætlar hann hins vegar að standa við stóru orðin.
Ronaldinho mun spila gegn Forli þann 15. nóvember og verður það fyrsti keppnisleikur hans síðan árið 2015.
Brasilíumaðurinn skoraði 299 mörk á ferlinum og virðist ekki hafa gefið upp vonina um að ná því 300. áður en yfir lýkur.
Ronaldinho er af mörgum talinn einn besti fótboltamaður sögunnar og var sannkallaður töframaður með boltann. Hann spilaði fótbolta með bros á vör og skemmti fólki um allan heim með ótrúlegum tilþrifum, svokallaður Joga Bonito-fótbolti.