25.10.26 - 10:57
Brynjar Ingi Erluson
Emery reiddist eftir sigurinn á Man City: Ég var ekkert að hlusta á þá

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Unai Emery, stjóri Aston Villa, var ekki skemmt þegar hann var spurður út í kærumál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City á fréttamannafundi í gær.

TENGT EFNI
England: Villa fyrst til að leggja Man City að velli
Lærisveinar Emery urðu fyrstir til að leggja Man City að velli í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu þegar þeir unnu 2-1 sigur á liði Enzo Maresca á Villa Park í gær.
Emery var að vonum ánægður með sigurinn, en tók því ekki jafn vel þegar fréttamaður spurði hann út í brot City á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar.
City hefur verið sektað fyrir brot á 114 af 115 ákæruliðum, en félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni og er búist við að niðurstaða fáist snemma á næsta ári.
„Ég var einbeittur að leiknum en ekki því sem stuðningsmennirnir voru að gera. Ég var að hugsa um hvernig við gætum unnið þá, ekki að hlusta á það sem fólk var að segja.“
„Þetta snýst um fótbolta, fótbolta og aftur fótbolta! Ef þú spyrð mig um fótbolta get ég svarað þér,“ sagði Emery.

???????????? Unai Emery was NOT happy after being asked about Manchester City's charges... ????? https://t.co/CDXo692Bfd
— EuroFoot (@eurofootcom) October 25, 2026