Fotbolti.net
25.10.26 - 10:37
Brynjar Ingi Erluson

Segir Wirtz hafa gert mistök með því að fara til Liverpool

Segir Wirtz hafa gert mistök með því að fara til Liverpool
Canon

Mynd: EPA

Uli Hoeness, heiðursforseti Bayern München, telur að Florian Wirtz hafi gert mistök með því að velja Liverpool fram yfir þýska stórliðið.
Bayern München háði harða baráttu við Liverpool um Wirtz á síðasta ári, en Þjóðverjinn ákvað að takast á við nýja áskorun á Englandi eftir að hafa gert frábæra hluti með Bayer Leverkusen.

Gengi hans hjá Liverpool hefur hins vegar verið upp og niður. Wirtz hefur sætt töluverðri gagnrýni fyrir frammistöðu sína, en virðist nú vera að finna sitt gamla form og hefur skorað þrjú mörk í síðustu þremur leikjum.

Hoeness telur að Wirtz hafi gert stór mistök með því að velja Liverpool fram yfir Bayern og segir að hann hefði notið sín mun betur hjá þýska stórliðinu.

„Florian Wirtz myndi spila miklu, miklu betur hjá Bayern en hann gerir hjá Liverpool. Ég horfi á flesta leiki hans og mér finnst Liverpool ekki hafa tekist að laga hann almennilega að leik liðsins.“

„Hjá Leverkusen fékk hann boltann nánast í hvert einasta skipti, en hjá Liverpool er hann bara einn af mörgum,“
sagði Hoeness við Welt am Sonntag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.