Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 25. nóvember 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho ætlar ekki að fá Zlatan - Passar ekki út af Kane
Ætlar ekki að sækja Zlatan.
Ætlar ekki að sækja Zlatan.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir útilokað að Zlatan Ibrahimovic muni semja við félagið í janúar.

Hinn 38 ára gamli Zlatan er í leit að nýju félagi en hann lék undir stjórn Mourinho hjá Manchester United þar sem hann vann Evrópudeildina og enska deildabikarinn.

Mourinho vill ekki fá Zlatan þar sem hann er með Harry Kane í sínu liði.

„Við erum með besta framherjann á Englandi og hann er einn af tveimur eða þremur bestu framherjum í heimi," sagði Mourinho.

„Það passar ekki fyrir leikmann eins og Zlatan, framherja á fertugsaldri sem getur spilað með hvaða liði sem er í heimi, að koma til félagsins þegar við erum með Harry Kane."
Athugasemdir
banner
banner
banner