Fotbolti.net
25.11.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Afturelding hefur boðið í Aron Inga

Afturelding hefur boðið í Aron Inga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net lagt fram tilboð í Aron Inga Magnússon leikmann Þórs. Fleiri félög hafa áhuga á Aroni.

Aron Ingi er búsettur sunnan heiða og gæti spilað með liði þar á næsta tímabili. Undir lok tímabilsins æfði hann með Breiðabliki og þótti standa sig vel.

Aron átti virkilega gott tímabil 2025 þegar Þór vann Lengjudeildina en meiðsli settu stórt strik í hans reikning á liðnu tímabili.
Aron glímdi við meiðsli á undirbúningstímabilinu og meiddist aftur um sumarið. Miðjumaðurinn kom við sögu í 14 leikjum og byrjaði þrjá þeirra. Hann skoraði þá eitt mark í eina bikarleik Þórs á tímabilinu.

Hann er 22 ára og lék á sínum fjóra leiki með U19 landsliðinu. Hann fór árið 2022 og var í um átta mánuði á láni hjá ítalska félaginu Venezia.

Afturelding vann Lengjudeildina í ár og verður í Bestu deildinni á næsta tímabili.
Afturelding hefur boðið í Aron Inga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.