25.11.26 - 12:53
Elvar Geir Magnússon
Grétar Rafn yfirmaður fótboltamála í Minnesota

Grétar Rafn Steinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grétar Rafn Steinsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í hinum ýmsu miðlum er greint frá því að Grétar Rafn Steinsson sé að taka við starfi yfirmanns fótboltamála hjá bandaríska MLS-félaginu Minnesota United.
Grétar hefur undanfarin ár unnið fyrir 49ers Enterprises og tekið þátt í stórum ákvörðunum hjá skoska stórliðinu Rangers.
Áður var hann í stóru hlutverki á bak við tjöldin hjá Everton í leikmannamálum félagsins og þá starfaði hann fyrir Tottenham áður en hann fór til Leeds.

Minnesota United endaði í tíunda sæti Vesturdeildar bandarísku MLS-deildarinnar og komst ekki í úrslitakeppnina.
Grétar er 44 ára og er fyrrum landsliðsmaður Íslands. Hann lék lengi í atvinnumennsku erlendis; í Sviss, Hollandi Tyrklandi og á Englandi. Að loknum leikmannsferlinum lauk Grétar Rafn meistaranámi í íþróttastjórnun við Johann Cruyff stofnunina í Barcelona og er hann einnig útskrifaður sem Level 5 Technical Director frá enska fótboltasambandinu.