Fotbolti.net
26.01.14 - 22:15
Elvar Geir Magnússon

Freyr Alexandersson: Ungir strákar í stórum hlutverkum

Auglýsing
Freyr Alexandersson: Ungir strákar í stórum hlutverkum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir og Fjölnir gerðu 1-1 jafntefli þegar liðin áttust við í Reykjavíkurmótinu í dag. Freyr Alexandersson, annar þjálfara Leiknis, telur að úrslitin hafi verið sanngjörn.
„Mér fannst þetta þokkalega leikur. Það sem við lögðum upp með gekk upp og við sköpuðum okkur mörg góð færi,\" sagði Freyr eftir leik.

„Síðustu 20 mínúturnar var þetta svolítið eins og tennis, fram og til baka. Það gekk ekki að ná í þrjú stig en ég er ánægður með margt.\"

Nokkrir ungir strákar stóðu sig vel í liði Leiknis í kvöld.

„Ég er mjög ánægður með ungu strákana. Það er kannski ljósasti punkturinn. Þeir fengu stór hlutverk, tóku þau og skiluðu frábærri frammistöðu. Það er það sem við viljum. Þeir sýndu frábæra frammistöðu.\"

Tveir Bandaríkjamenn, vinstri bakvörður og sóknarmaður, eru til reynslu hjá Leikni og í viðtalinu sem sjá í sjónvarpinu hér að ofan tjáir Freyr sig meðal annars um þá.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.