Róbert Hauksson er að ganga í raðir Leiknis R. frá Þrótti R.
Formaður knattspyrnudeildar Þróttar, Kristján Kristjánsson, staðfesti við Fótbolta.net að félagið hefði samþykkt tilboð Leiknis í leikmanninn og gefið leyfi á beinar viðræður milli Leiknis og Róberts.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net gengu viðræður Róberts við Leikni vel og verður hann kynntur fljótlega sem nýr leikmaður félagsins.

Róbert átti gott tímabil með Þrótti í Lengjudeildinni í fyrra, skoraði sex mörk í tuttugu leikjum og var að mörgum talinn besti leikmaður Þróttar á liðnu tímabili.
Fram hafði áhuga á Róberti fyrr í vetur en náði ekki samkomulagi við Þrótt. „Auðvitað viljum við helst að Róbert spili fyrir Þrótt, úrvalsgóður leikmaður en skiljum vel að hann hafi metnað til að spila í efstu deildum," sagði Kristján við Fótbolta.net í desember.
Það var Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni sem vakti athygli á þessum skiptum í Twitter-færslu fyrr í vikunni.
Sjá einnig:
Hin hliðin - Róbert Hauksson
Athugasemdir