Gennaro Gattuso, þjálfari Napoli, reiknar með erfiðum síðari leik gegn Barcelona í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Liðin gerðu 1-1 jafntefli á Ítalíu í gær en síðari leikurinn verður á Nou Camp þann 18. mars.
Gattuso hefði viljað ná betri úrslitum fyrir leikinn þar en hann segir Napoli undirbúa sig fyrir erfiða heimsókn til Barcelona.
„Auðvitað er ekkert búið," sagði Gattuso eftir leikinn í gær.

„Við vitum að þetta verður erfitt en við kaupum hjálma, brynju og við munum fara og spila á Nou Camp."
Athugasemdir