Ísland U21 6 - 2 Eistland U21
1-0 Daníel Tristan Guðjohnsen ('2 )
1-1 Kristjan Kriis ('35 )
2-1 Viktor Bjarki Daðason ('45 )
3-1 Viktor Bjarki Daðason ('50 )
4-1 Daníel Tristan Guðjohnsen ('55 )
5-1 Hilmir Rafn Mikaelsson ('73 )
6-1 Helgi Fróði Ingason ('78 )
6-2 Ramol Sillamaa ('91 )
Lestu um leikinn
1-0 Daníel Tristan Guðjohnsen ('2 )
1-1 Kristjan Kriis ('35 )
2-1 Viktor Bjarki Daðason ('45 )
3-1 Viktor Bjarki Daðason ('50 )
4-1 Daníel Tristan Guðjohnsen ('55 )
5-1 Hilmir Rafn Mikaelsson ('73 )
6-1 Helgi Fróði Ingason ('78 )
6-2 Ramol Sillamaa ('91 )
Lestu um leikinn
U21 ára landslið karla vann sannfærandi 6-2 sigur á Eistlandi í undankeppni Evrópumótsins á Þróttarvellinum í Laugardal í kvöld. Daníel Tristan Guðjohnsen og Viktor Bjarki Daðason skoruðu báðir tvö mörk.
Strákarnir voru ekki í neinum vandræðum með Eista og tók aðeins tæpar tvær mínútur að taka forystuna en það gerði Daníel Tristan eftir að Gísli Gottskálk Þórðarson náði að pota boltanum til Daníels eftir góða pressu íslenska liðsins. Daníel afgreiddi síðan boltann fagmannlega í netið.
Íslenska liðið var með öll völd á vellinum og ógnuðu stanslaust, en það kom kafli þar sem eistneska liðið náði að bíta frá sér og jafna óvænt metin með marki Kristjan Kriis á 35. mínútu. Kriis skoraði með skalla eftir hornspyrnu.
Útlitið var ekki gott næstu mínútur og aðgerðir íslenska liðsins ekki vænlegar til árangurs, en undir lok fyrri hálfleiks náðu þeir að svara fyrir sig er Ágúst Orri Þorsteinsson sendi Viktor Bjarka í gegn sem kláraði færið af yfirvegun. Daníel og Viktor báðir að skora í fyrsta leiknum með U21.
Þetta var dýrmæt staða til að fara með inn í hálfleikinn og bætti Viktor Bjarki við öðru snemma í þeim síðari eftir hornspyrnu Róberts Frosta Þorkelssonar. Boltinn datt fyrir Viktor á fjærstönginni sem kom Íslandi í tveggja marka forystu.
Fimm mínútum síðar gerði Daníel Tristan annað mark sitt eftir undirbúning Viktors. Innkastið kom á Viktor sem framlengdi hann á Daníel. Góð samvinna hjá framtíðar framherjum A-landsliðsins.
Daníel fór af velli á 67. mínútu og kom Hilmir Rafn Mikaelsson inn í hans stað, en hann var ekki lengi að láta að sér kveða. Aðeins fimm mínútum eftir skiptinguna keyrði Viktor Bjarki að vörn Eistlands, áður en hann lagði hann út á Hilmi sem setti boltann í varnarmann og í netið.
Annar varamaður, Helgi Fróði Ingason, var næstur að koma sér á blað. Róbert Frosti, fyrrum samherji Helga hjá Stjörnunni, átti skot sem fór af stönginni og til Helga sem skoraði örugglega.
Eistar náðu inn einu sárabótarmarki undir lok leiks í gegnum Ramol Sillamaa en fleiri urðu mörkin ekki í Laugardal.
Þroskuð og fagmannleg frammistaða hjá strákunum sem komu sér í smá klandur í seinni hluta fyrri hálfleiks, en þeir komust yfir þá brekku og kláruðu þetta nokkuð þægilega í þeim síðari.
Sigurinn kemur Íslandi á toppinn í riðlinum með 11 stig eftir sex leiki, en Frakkar, sem eru í öðru sæti með 10 stig, eiga tvo leiki til góða. Frakkar mæta Lúxemborg í kvöld og spila síðan gegn Íslandi a mánudag sem verður líklega mikilvægasti leikur íslenska liðsins í riðlinum.
Mörkin frá Vísi:
Athugasemdir



