Samkvæmt heimildum Fótbolta.net vill Magnús Ingi Þórðarson (1999) fara frá Fram. Magnús er sóknarmaður sem uppalinn er hjá Fram.
Magnús var ekki í leikmannahópi Fram gegn Þór á fimmtudag eftir að hafa spilað rúmlega stundarfjórðung sem varamaður í bæði fyrstu og annari umferð.
Gegn ÍA í fyrstu umferðinni kom hann inn á í 73. mínútu í stöðunni 1-3 fyrir ÍA og Fram náði að kreista út jafntefli úr þeirri stöðu.

Hann var hluti af árinu 2018 hjá Fjölni og tímabilið 2021 var hann hjá Njarðvík. Annars hefur Magnús allan sinn feril verið hjá Fram.
Á síðasta tímabili kom Magnús við sögu í tólf leikjum í Bestu deildini en tókst ekki að skora í þeim.
Samningur hans við Fram rennur út eftir tímabilið. Samkvæmt Transfermarkt hefur hann spilað 84 leiki í efstu deild, skorað í þeim tíu mörk og lagt upp sjö.
Félagaskiptaglugginn er opinn út miðvikudaginn og áfram er opið fyrir innlend félagaskipti í Lengjudeildina og 2. deild út 6. maí.