Fotbolti.net
26.05.05 - 16:20
Magnús Már Einarsson

Davies til Everton (Staðfest)

Davies til Everton (Staðfest)
Canon
Everton hefur keypt miðjumanninn Simon Davies frá Tottenham á 3,5 milljónir punda en kaupverðið getur hækkað upp í 4 milljónir punda standi leikmaðurinn sig vel hjá Everton.
David Moyes var ánægður að fá þennan 25 ára gamla leikmann og hann sagði við heimasíðu Everton ,,Hann er einhver sem við höfum verið á eftir um stund. Við vonuðumst til að fá hann í janúar en það gerðist ekki þá."

Davies sem kom til Tottenham frá Peterbrough árið 2000 var einnig ánægður með að vera kominn í Everton en hann sagði meðal annars ,,Ég er að koma inn á bestu ár ferils míns og vonandi get ég gefið Everton þau. Þetta félag hefur góða sögu í að vinna hluti og þetta er félag á leið upp."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.