26.05.05 - 22:18
Magnús Már Einarsson
Issa verður með Keflavík í sumar (Staðfest)

Issa á æfingu hjá Keflavík.

Mynd: Heimasíða Keflavíkur/Jón Örvar Arason

Issa á æfingu hjá Keflavík.

Mynd: Heimasíða Keflavíkur/Jón Örvar Arason
Varnarmaðurinn Issa Abdulkadir hefur gert samning við Keflavík um að leika með liðinu í sumar en þetta staðfesti Kristján Guðmundsson þjálfari liðsins við Fótbolti.net í kvöld. Issa sem er 18 ára skrifaði undir samning við Keflvíkinga fyrir sigurleik liðsins á KR í kvöld.
Issa kemur frá Arsenal en hann er nýfarinn frá liðinu eftir að hafa verið á mála hjá því frá því að hann var 11 ára. Issa er upphaflega frá Sómalíu en hann er með breskan ríkisborgararétt.
Að sögn Kristjáns þá mun koma í ljós hvort að Keflvíkingar ætli að fá sér frekari liðsstyrk en hann sagðist frekar eiga von á því heldur en ekki.
Að sögn Kristjáns þá mun koma í ljós hvort að Keflvíkingar ætli að fá sér frekari liðsstyrk en hann sagðist frekar eiga von á því heldur en ekki.
