Tíu bestu kaup tímabilsins í Bestu deildinni

10. Ahmad Faqa (HK) - Sænski Sýrlendingurinn hefur komið flottur inn í lið HK og myndað öflugt miðvarðapar með Leifi Andra fyrirliða.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

9. Ólafur Karl Finsen (Fylkir) - Vonir Árbæinga um að halda sér í deildinni velta mikið á því hvort Ólafur haldist heill.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

8. Andri Rúnar Bjarnason (Valur) - Kominn með fjögur mörk í Bestu deildinni og náð að þagga ágætlega niður í gagnrýnisröddum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

7. Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur) - Enn og aftur mættur í Valstreyjuna og þar spilar hann ávallt vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

6. Arnór Sveinn Aðalsteinsson (Breiðablik) - Er ekki bara kominn heim til að ljúka ferlinum heldur til að láta til sín taka. Hefur reynst Blikum vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

5. Kjartan Henry Finnbogason (FH) - Kominn með fjögur mörk og verið verulega öflugur. Gefur af sér til yngri sóknarmanna liðsins og skiljanlega sakna margir stuðningsmenn KR hans.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

4. Hlynur Freyr Karlsson (Valur) - Þessi leikmaður á hrós skilið fyrir það hversu öflugur hann hefur komið inn í lið Vals og reynst mikilvægur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

3. Matthías Vilhjálmsson (Víkingur) - Margir settu spurningamerki við það þegar Víkingur sótti Matta Villa. Það heyrist ekkert í því fólki núna.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

2. Adam Ægir Pálsson (Valur) - Strax orðinn lykilhlekkur í sóknarleik Vals. Þegar hann er í stuði er Valur í stuði. Hefur skorað fimm mörk og er líka að leggja upp.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

1. Gunnar Vatnhamar (Víkingur) - Færeyski landsliðsmaðurinn hefur smellpassað í topplið Víkings. Þvílíkur liðsstyrkur sem hann hefur reynst. Bestu kaup tímabilsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




