Fotbolti.net
26.06.22 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

Fernandinho fer til Brasilíu - Kalvin Phillips í staðinn

Fernandinho fer til Brasilíu - Kalvin Phillips í staðinn
Canon

Mynd: Getty Images

Fabrizio Romano segir að félagaskipti Fernandinho til Atletico Paranaense séu svo gott sem staðfest.

Brasilíski miðjumaðurinn er samningslaus eftir níu ár og tæplega 400 keppnisleiki með Manchester City og skrifar undir tveggja ára samning við brasilíska félagið.

Hinn 37 ára gamli Fernandinho vildi snúa aftur til heimalandsins til að enda ferilinn og mun Kalvin Phillips taka stöðu hans í leikmannahópi Man City. 

Eins og hefur verið greint frá undanfarna daga mun City borga um 50 milljónir punda til að kaupa Phillips frá Leeds.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.