„Ánægður bara með hugarfarið og hvernig leikmenn hlupu og spiluðu leikinn. Við báðum um það að hugsa fyrst og fremst bara um okkur fyrir þennan leik og mér fannst við gera það,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir tap gegn Þrótti kvöld.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 2 Stjarnan
„Það er margt gott í varnarleiknum áfram en við vinnum ekki nógu vel úr boltanum þegar við erum búin að vinna hann.“
„Við erum í 2-1 þegar við eigum aukaspyrnu á miðjunni og bara klikkum svona svakalega útfærslunni á henni og í framhaldi að standa hana réttstæða, þar eru svakaleg tæknileg mistök.“
Hvernig finnst þér búið að ganga hingað til í sumar? „Þetta er sveiflukennt eins og virðist vera alltaf í þessari deild. Liðin eru að vinna nokkra leiki og tapa nokkrum leikjum. Aðalmálið er bara að horfa á frammistöðuna og leiða aðeins úrslitin framhjá sér. “
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.