Það er nóg um að vera í Bestu deild karla í dag þar sem Stjarnan tekur á móti KR í lokaleik dagsins.
Enginn annar en Steven Caulker, fyrrum varnarmaður Tottenham Hotspur, er meðal áhorfenda á vellinum. Fótboltasérfræðingurinn Albert Brynjar Ingason sagði frá því í útsendingu Stöðvar 2 Sport á leikjum dagsins að Caulker væri í samningsviðræðum við Stjörnuna.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 - 2 KR
Caulker er 33 ára gamall og lék síðast með Ankara Keçiörengücü í B-deild tyrkneska boltans. Hann stóð sig vel þar, en Liverpool og Southampton eru einnig meðal félaga sem hann hefur leikið fyrir á ferlinum.
Caulker var mikilvægur hlekkur í unglingalandsliðum Englands en tókst ekki að taka stökkið upp í A-landsliðið. Hann spilaði þó einn leik fyrir A-landslið Englands og skoraði eitt mark.
Síðustu ár hefur Caulker mikið verið að flakka á milli. Árið 2017 yfirgaf hann QPR og opnaði sig þá um andleg veikindi, spilafíkn og drykkjuvandamál. Hann var þá 25 ára og talaði opinskátt um að hann hefði hugsað um að taka eigið líf.
Eftir að hann yfirgaf QPR þá hefur hann spilað í Skotlandi, Tyrklandi og á Spáni.
Núna er spurning hvort Ísland bætist við þann lista en sumarglugginn opnar ekki fyrr en 17. júlí. Það er því nokkuð í að hann geti spilað fyrir Stjörnuna ef hann gengur í raðir félagsins.
Athugasemdir