3. deild: Stólarnir upp að hlið Víðis á toppnum

Tindastóll vann góðan sigur á Sindra

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Tindastóll vann góðan sigur á Sindra

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Tindastóll 4 - 2 Sindri
1-0 Matheus Bettio Gotler ('31, víti )
2-0 Matheus Bettio Gotler ('48 )
2-1 Jóhann Frans Ólason ('62 )
3-1 Arnar Ólafsson ('64 )
4-1 Marc Barragán Escriva ('70 )
4-2 Fredrick Delali ('87 )
1-0 Matheus Bettio Gotler ('31, víti )
2-0 Matheus Bettio Gotler ('48 )
2-1 Jóhann Frans Ólason ('62 )
3-1 Arnar Ólafsson ('64 )
4-1 Marc Barragán Escriva ('70 )
4-2 Fredrick Delali ('87 )
Tindastóll kom sér upp að hlið Víðis á toppi 2. deildar karla með 4-2 sigri á Sindra á Sauðárkróksvelli í gær.
Matheus Gotler kom Stólunum í tveggja marka forystu. Hann skoraði af vítapunktinum á 31. mínútu og bætti svo við öðru marki í upphafi síðari hálfleiks. Það var hans sjöunda mark í deildinni í sumar.
Jóhann Frans Ólason hleypti spennu í leikinn þegar hann minnkaði muninn fyrir Sindra á 62. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar kom Arnar Ólafsson heimamönnum aftur í tveggja marka forystu.
Marc Escriva gerði svo endanlega út um leikinn sex mínútum síðar.
Fredrick Delali minnkaði muninn fyrir Sindra á lokamínútunum en lengra komust gestirnir ekki. Stólarnir unnu sannfærandi sigur og eru nú með 22 stig í öðru sæti, jafnmörg stig og Víðir sem situr á toppnum með betri markatölu.
Sindri er áfram í næstneðsta sæti með átta stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víðir | 9 | +13 | 22 |
| 2 | Tindastóll | 10 | +12 | 22 |
| 3 | KH | 9 | +15 | 18 |
| 4 | Reynir S. | 9 | +2 | 16 |
| 5 | KF | 9 | 0 | 12 |
| 6 | KV | 9 | -6 | 12 |
| 7 | Augnablik | 9 | 0 | 11 |
| 8 | Ýmir | 9 | -3 | 11 |
| 9 | Höttur | 9 | -1 | 10 |
| 10 | KÁ | 9 | -7 | 9 |
| 11 | Sindri | 10 | -13 | 8 |
| 12 | Árbær | 9 | -12 | 4 |