Fotbolti.net
25.06.26 - 17:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

KR hefur áhuga á Vuk

KR hefur áhuga á Vuk
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net áhuga á því að fá Vuk Oskar Dimitrijevic í sínar raðir frá Fram.

Vuk er 25 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá Leikni, fór þaðan til FH en er nú á sínu öðru tímabili í Úlfarsárdal. Áður en hann samdi við Fram var hann orðaður við KR.

Vuk skrifaði undir tveggja ára samning við Fram eftir tímabilið 2024 og rennur sá samningur út í lok árs. Hafi KR áhuga á því mætti félagið ræða við Vuk þann 1. júlí um að ganga í raðir félagsins eftir að samningurinn við Fram rennur út.

Sex mánuðum fyrir samningslok mega önnur félög hafa samband við leikmann, en þurfa að láta félagið sem leikmaðurinn er samningsbundinn vita af því.
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
TENGT EFNI

Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli

Vuk hefur komið við sögu í tíu leikjum í Bestu deildinni á tímabilinu, skorað tvö mörk og lagt upp tvö. Á síðasta tímabili spilaði hann átján leiki, skoraði níu mörk og lagði upp eitt í Bestu deildinni.

KR er að selja Amin Cosic á háa upphæð til Viking í Noregi, Alexander Rafn Pálmason er að fara til Nordsjælland í Danmörku og Guðmundur Andri Tryggvason er sterklega orðaður við FH. Það eru þrír sóknarþenkjandi leikmenn sem KR er að missa.
KR hefur áhuga á Vuk
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.