25.06.26
Fimm félög á Englandi fyrir Hákon Arnar
GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON
Því hefur verið velt upp í nokkurn tíma núna hver verður næsti íslenski leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni. Nafnið sem er efst í huga er Skagamaðurinn Hákon Arnar Haraldsson. Það virðist vera rökrétt næsta skref fyrir miðjumanninn öfluga sem hefur heillað mikið í franska boltanum eftir að hafa slegið í gegn í Danmörku með FC Kaupmannahöfn.
Hákon hefur þróast í einn af áhugaverðustu sóknarsinnuðu miðjumönnum Evrópu. Þegar tölfræðin frá síðasta tímabili í Ligue 1 í Frakklandi er skoðuð verður enn augljósara hvers vegna áhugi frá enn stærri deildum er talinn aðeins tímaspursmál.
Það yrði mjög skemmtilegt að sjá hann í bestu deild heims en hér í þessari grein skoðuð hvaða lið á Englandi henta honum best út frá gögnum. Þar á meðal er eitt af allra stærstu félögum heims.