Fotbolti.net
26.06.26 - 09:00
Elvar Geir Magnússon

Alvarlegir vankantar á 48 liða HM - Betra að tapa en vinna?

Alvarlegir vankantar á fyrirkomulagi HM eru að raungerast. Úr leik Ástralíu og Paragvæ.

Alvarlegir vankantar á fyrirkomulagi HM eru að raungerast. Úr leik Ástralíu og Paragvæ.

Canon

Mynd: EPA

Það var engin áhætta tekin í markalausu jafntefli Ástralíu og Paragvæ á HM í lokaumferð riðlakeppninnar í nótt. Vitað var fyrir leikinn að jafntefli myndi henta báðum liðum og þessi úrslit koma ekki á óvart.

Ástralía þurfti jafntefli til að innsigla annað sætið. Paragvæ vissi að með því að gera jafntefli og ná í fjórða stigið sitt myndi liðið komast áfram með góðan árangur í þriðja sæti.

Það eru alvarlegir vankantar við nýtt fyrirkomulag heimsmeistaramótsins, 48 liða mót.
Lítil spenna í riðlakeppninni
Átta lið sem enda í þriðja sæti tryggja sér áfram. Þriggja stiga uppskera og -1 í markatölu mun líklega duga til að komast áfram í 32-liða úrslitin. Spennan í riðlakeppninni er því minni en áður og líkurnar á að góð lið sitji eftir mjög litlar.

En það sem er alvarlegra er að lið geta spilað upp á önnur úrslit en sigur til að komast áfram, eða jafnvel velja sér mótherja í útsláttarkeppninni.

Freistandi að tapa
BBC fjallaði um það í gær að Ástralía og Paragvæ gætu hæglega spilað upp á jafntefli og það raungerðist. Markalaust jafntefli í leiðinlegum leik. En það sem er enn alvarlegra:

Í J-riðlinum sem leikinn verður aðfaranótt sunnudags gætu lið litið svo á að það sé vænlegra að lenda í þriðja sæti heldur en öðru sæti. Liðið sem endar í öðru sæti mun spila við topplið H-riðils en þar situr Spánn sem stendur. Eins og staðan er núna myndi Sviss hinsvegar vera mótherjinn fyrir liðið í þriðja sæti.

Fyrir lokaumferðina í J-riðli munu liðin vita hverjir mögulegir mótherjar eru og sú staða gæti verið fyrir hendi að það sé hreinlega freistandi fyrir Austurríki að tapa fyrir Alsír og mæta þá Sviss frekar en Spáni í 32-liða úrslitunum.

Óhentug tala
Fyrir mótið hafði verið umræða um að 48 lið væri óhentugur fjöldi fyrir heimsmeistaramót. En eitt af loforðum Gianni Infantino þegar hann var kjörinn forseti FIFA 2016 var að stækka mótið.

„Þessir vankantar gætu gefið Infantino ástæðu til að breyta þátttökufjöldanum í hentugri tölu. Ekki fækka aftur í 32 lið heldur stækka það í 64," segir í grein BBC.
Gianni Infantino er duglegur að mæta á völlinn.

Gianni Infantino er duglegur að mæta á völlinn.

Canon

Mynd: EPA

Er betra fyrir Austurríki að tapa en sigra?

Er betra fyrir Austurríki að tapa en sigra?

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.