Fotbolti.net
26.06.26 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

4. deild: Skoraði þrennu í sigri Vængja Júpiters

Arnar Ragnars Guðjohnsen skoraði þrennu fyrir Vængi Júpiters

Arnar Ragnars Guðjohnsen skoraði þrennu fyrir Vængi Júpiters

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Ragnars Guðjohnsen skoraði þrennu er Vængir Júpiters unnu 6-0 stórsigur á Höfnum í 4. deild karla í gær.
Arnar skoraði tvö mörk í fyrri hálfleiknum áður en Aron Heimisson og Matthías Elnar Óskarsson bættu við mörkum fyrir Vængi Júpiters.

Arnar fullkomnaði þrennuna þegar rúmur hálftími var eftir og Baltasar Þór Laufarsson rak svo síðasta smiðshöggið.

Vængirnir eru komnir upp í 5. sæti með 10 stig en Hafnir eru í næstneðsta sæti með 5 stig.

Álafoss og Úlfarnir gerðu þá 2-2 jafntefli. Guðmundur Ágúst Héðinsson kom Úlfunum yfir en heimamenn svöruðu átta mínútum síðar með marki Heiðmars Trausta Elvarssonar.

Gunnar Smári Jónsson kom Álafossi yfir tuttugu mínútum fyrir leikslok en Úlfarnir náðu að bjarga stigi þegar Hermann Björn Harðarson jafnaði undir lokin.

Úlfarnir eru í 4. sæti með 10 stig en Álafoss situr á botninum með aðeins 4 stig.

Álafoss 2 - 2 Úlfarnir
0-1 Guðmundur Ágúst Héðinsson ('20 )
1-1 Heiðmar Trausti Elvarsson ('28 )
2-1 Gunnar Smári Jónsson ('72 )
2-2 Hermann Björn Harðarson ('89 )

Vængir Júpiters 6 - 0 Hafnir
1-0 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('1 )
2-0 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('42 )
3-0 Aron Heimisson ('48 )
4-0 Matthías Elnar Óskarsson ('51 )
5-0 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('59 )
6-0 Baltasar Þór Laufarsson ('79 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes10+1727
2Hamar10+2325
3Árborg9+2019
4Elliði10-513
5Úlfarnir10+112
6Vængir Júpiters9011
7KFR10-118
8Álafoss10-118
9ÍH10-77
10Hafnir10-277
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.