Fotbolti.net
26.06.26 - 02:55
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu mörkin: Tyrkir sneru taflinu við gegn varaliði heimamanna

Arda Güler skorar fyrra mark Tyrkja

Arda Güler skorar fyrra mark Tyrkja

Canon

Mynd: EPA

Það er kominn hálfleikur í lokaleikjum D-riðils á HM.
Tyrkir eru að mæta varaliði Bandaríkjanna í Los Angeles en staðan er 2-1 fyrir Tyrkjum í hálfleik.

Mauricio Pochettino gerði níu breytingar á byrjunarliði Bandaríkjanna fyrir leikinn en það kom ekki í veg fyrir að heimamenn byrjuðu betur.

Auston Trusty, sem kom inn í vörn Bandaríkjanna fyrir leikinn, fékk boltann á fjærstöng eftir hornspyrnu. Hann var aleinn og óáreittur og skilaði boltanum framhjá markverði Tyrkja og í netið.

Sjáðu markið hér

Tyrkir svöruðu hins vegar fyrir sig. Arda Güler jafnaði metin með skoti af stuttu færi.

Sjáðu markið hjá Guler

Orkun Kökcü kom Tyrkjum svo yfir á 31. mínútu eftir frábæran samleik og staðan því 2-1 í hálfleik.

Sjáðu annað mark Tyrkja

Staðan er markalaus í leik Ástralíu og Paragvæ en þjóðirnar berjast um annað sæti riðilsins. Ef leikurinn endar með markalausu jafntefli verða Ástralir í öðru sæti og Paragvæ í því þriðja, en fjögur stig duga Paragvæ til að komast áfram.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.