Fotbolti.net
26.06.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd setur Nmecha efst á óskalistann

Man Utd setur Nmecha efst á óskalistann
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur mikinn áhuga á því að fá þýska landsliðsmanninn Felix Nmecha frá Borussia Dortmund eftir heimsmeistaramótið.
Nmecha er 25 ára miðjumaður sem hefur spilað með Dortmund síðustu þrjú ár.

Hann er orðinn fastamaður í þýska landsliðinu og byrjað alla þrjá leiki liðsins á heimsmeistaramótinu og heillað verulega með tveimur stoðsendingum og einu marki.

Patrick Berger hjá þýska fjölmiðlinum Sky segir hann vera efstan á óskalista Manchester United fyrir sumarið. Christopher Vivell, sem er einn af stjórnendum í félagaskiptum United, hefur verið í beinu sambandi við föruneyti Nmecha.

United fær samkeppni frá Liverpool, Manchester City og Real Madrid um þennan öfluga miðjumann.

Dortmund mun ekki hlusta á tilboð undir 100 milljónum evra, en það mun þó líklega ekkert gerast í hans málum fyrr en eftir heimsmeistaramótið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.