26.07.05 - 11:33
Hafliði Breiðfjörð
Ásgrímur Albertsson í HK á ný (Staðfest)


Mynd: hk.is


Mynd: hk.is
Ásgrímur Albertsson fékk í dag leikheimild með sínu gamla liði, HK sem leikur í 1. deildinni, en hann hefur leikið með Keflavík í Landsbankadeildinni í sumar.
Ásgrímur gekk í raðir Keflavíkur í janúar en hefur ekki fengið mörg tækifæri með liðnu og lék aðeins 3 leiki í deildinni og engan í VISA-bikarnum þar sem Keflavík féll einmitt út fyrir HK.
Ásgrímur mætti á sína fyrstu æfingu með HK í gærkvöld og mun leika með liðinu út tímabilið. Hann hafði verið hjá HK frá 18 ára aldri og hefur leikið með þeim 98 leiki.
Ásgrímur mætti á sína fyrstu æfingu með HK í gærkvöld og mun leika með liðinu út tímabilið. Hann hafði verið hjá HK frá 18 ára aldri og hefur leikið með þeim 98 leiki.
