Fotbolti.net
26.07.05 - 14:34
Magnús Már Einarsson

WBA krækti í Kamara (Staðfest)

WBA krækti í Kamara (Staðfest)
Canon
WBA hefur keypt framherjann Diomansy Kamara frá ítalska liðinu Modena á 1,5 milljónir punda. Kamara sem er Senegali hefur gert þriggja ára samning við WBA.
Kamara lék með Portsmouth á síðustu leiktíð og skoraði 6 mörk í 29 leikjum með liðinu í ensku úrvalsdeildinni. Portsmouth náði hinsvegar ekki að halda í Kamara sem er nú farinn til WBA en reyndar hafði Southampton einnig mikinn áhuga á kappanum.

Bobby Robson stjóri WBA er ánægður með kaupin á Kamara en hann sagði:,,Ein af stærstu ástæðunum fyrir því að við fengum Diomansy um borð er að hann er mjög fjölhæfur."

,,Hann getur spilað í þremur mismunandi stöðum - úti vinstra megin, úti hægra meginn og frammi. Hann hefur mikinn hraða og þegar að ég sá hann spila með Portsmouth á síðasta tímabili fannst mér hann vera mikil hætta."



Vissir þú að:
Kamara fagnaði fyrstu tveimur mörkum sínum fyrir Portsmouth með því að fara úr treyjunni og sveifla henni í hringi. Eins og lög og reglur gera ráð fyrir fékk Kamara gult spjald í bæði skiptin fyrir að fara úr treyjunni. Ástæðan fyrir því að hann gerði þetta tvívegis í röð var sú að hann kunni ekki nóg í ensku og forráðamenn Portsmouth gátu ekki útskýrt fyrir honum að þetta mætti ekki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.