Svenni eftir dramatískt jöfnunarmark: Þrautseigjan í þessu liði er frábær
Auglýsing

Svenni talar um blendnar tilfinningar í viðtalinu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

<i>„Það eru svona blendnar tilfinningar. Maður hefði viljað þrjú stigin en úr því sem komið var þá er ég rosalega ánægður með eitt stig,"</i> sagði Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna, eftir jafntefli gegn Grindavík í dag. Stigið er það fyrsta sem Magni fær í sumar.
„Þrautseigjan í þessu liði er frábær og ég er stoltur af leikmönnum. Við ræðum þetta mikið fyrir leiki að við ætlum alltaf að halda áfram út leikinn og það skein svolítið í gegn í dag."
Tveir varamenn skoruðu hjá Magna í dag. Tómas Veigar Eiríksson jafnaði í 2-2 og Rúnar Þór Brynjarsson í 3-3.
„Það er frábært. Frábært að fá framlag frá þeim og öllum."
Talsvert betra að fara í næsta leik með eitt stig heldur en núll stig?
„Já eins og ég segi þá á þetta klárlega eftir að gefa okkur smá sjálfstraust og byr undir báða vængi. Léttir aðeins á strákunum að vera komnir á blað," sagði Svenni að lokum.
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.