þri 26. júlí 2022 15:47
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Víkings gegn TNS: Viktor Örlygur inn fyrir Pablo
Kristall Máni skorar af vítapunktinum.
Kristall Máni skorar af vítapunktinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 17:15 hefst seinni leikur The New Saints og Íslands- og bikarmeistara Víkings í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Víkingar eru 2-0 yfir eftir fyrri leikinn þar sem Kristall Máni Ingason skoraði bæði mörkin af vítapunktinum.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Miðjumaðurinn öflugi Pablo Punyed verður ekki með Víkingi í seinni leiknum í dag þar sem hann tekur út leikbann. Viktor Örlygur Andrason tekur stöðu hans en að öðru leyti er Víkingur með sama byrjunarlið og í fyrri leiknum.

Byrjunarlið Víkings
1. Ingvar Jónsson (m)
3. Logi Tómasson
4. Oliver Ekroth
5. Kyle McLagan
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason
17. Ari Sigurpálsson
18. Birnir Snær Ingason
20. Júlíus Magnússon (f)
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
80. Kristall Máni Ingason
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner